Guðrún Heimisdóttir
27.08.2006 14:12:07 / GudrunHeimis

Dýravinir:) 3 vikur!

Skjár 1

Sunnudagurinn 17. september

Kl. 20:00

:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2006 23:04:17 / GudrunHeimis

Síðasta færslan - keep in touch

Komiði sæl dúllurnar mínar!

Jæja, ég verð að láta þessu lokið í bloggmálum mínum, sorgardagur í dag! Margt hefur gerst síðan ég byrjaði á blogginu og mér finnst þetta alveg stórsniðugt tæki til að leyfa vinum og vandamönnum að fylgjast með manni en í þeirri stöðu sem ég er komin í get ég einfaldlega ekki látið gamminn geysa á netinu. Viljið þið heyra skoðanir mínar bið ég ykkur vinsamlegast að bjalla á mig, nú eða bara kíkja í heimsókn:)

Update á það sem á daga mína hefur drifið frá því ég skrifaði hér til vinstri ,,ég, um mig, frá mér, til mín” er eftirfarandi:

Tíminn á Nýju Lífi og Gestgjafanum var skemmtilegur, öðlaðist þar reynslu á mánaðartímaritum og kynntist frábærum konum en ekki leið á löngu þar til ég var farin að vinna að eigin hugmynd, enda gaf ég það skýrt til kynna í blogginu að draumarnir væru stórir:

,, …er að fara yfir á Nýtt Líf og Gestgjafann þann 1. ágúst næstkomandi... plönin hjá mér eftir að hafa leyst af þar í ár eru stór og verða gerð kunngjör um leið og þau verða að veruleika! Stórir draumar hjá litla MR-ingnum... við verðum ekki öll læknar og lögfræðingar, ég ætla að verða e-ð miklu, miklu skemmtilegra:D

Hugmyndin mín var nýtt tímarit og ég komst ansi nálægt því að setjast í ritstjórastól í byrjun síðasta árs en þegar það gekk ekki ákvað ég að reyna að klára skólann og hætti því hjá Fróða. Næsta dag mætti ég í starfskynningu hjá fréttastofu Stöðvar 2 sem leiddi til þess að ég fékk vinnu þar um sumarið. Það var líka alveg ótrúleg reynsla og að sumri loknu var ég staðráðin í að klára þennan blessaða skóla. Tók sjö áfanga fyrir jól og á nú ekkert eftir nema lokaverkefni... og alveg óvíst hvenær það verður klárað, get því ekki lofað útskriftarpartíi í byrjun sumars. Síðasta vor fóru svo fram tökur á Gæludýra-Guðrúnu fyrir Stundina okkar og bókin ,,Gæludýrin okkar” kom út stuttu fyrir jól og seldist vel.

En nú er svo komið að ég er byrjuð að vinna við nýtt tímarit sem hefur göngu sína í byrjun mars. ,,Fyrstu skrefin” fjallar um meðgöngu, fæðingu og fyrstu ár barnsins og ég ritstýri. Spennandi verkefni framundan og bloggið verður því saltað en aldrei að vita nema ég skelli inn fréttum af Gæludýra-Guðrúnu þegar hún lætur til sín taka.

Ég á eftir að sakna ykkar... I’ll keep in touch;)

For the last tima... Bleee..

GG;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 15:47:26 / GudrunHeimis

Reyndari í dag en í gær...

Einhver sagði mér að allt færi niðrá við þegar maður er orðinn 25 ára?? Rassinn slappast, brjóstin síga, hrukkurnar byrja að myndast, húðin fölnar (hún verður nú ekki mikið fölari hjá mér) og baugarnir leka niður á kjálka! Gef þessu nú nokkur ár í viðbót, ég vil meina að það sé ekkert hræðilegt við að vera 25... ef maður kvartar yfir því þá á maður nú ekki bjarta afmælisdaga framundan því maður verður bara eldri með hverjum deginum sem líður!

Þess vegna hef ég ákveðið að horfa svona á málin:
Maður eldist, that's a fact (ekki að það séu 9 milljónir hjóla í Peking??)!
Ég er reyndari í dag en í gær og þannig verð ég reyndari fimmtug en fertug... tala nú ekki um reyndari en 25 ára!!
Hrukkur bera vott um lífsgleði og fylgifisk hennar, sorgina sem enginn fær flúið. Bótox minnkar ekki sorgina og læknar engin sár!

Ég held að þeir sem kvarti yfir aldri sakni fyrri tíma og séu jafnvel svekktir yfir að hafa ekki eytt fyrri árum í eitthvað annað. En þetta snýst um að njóta lífsins til fulls og það þýðir ekki að maður þurfi að fara til útlanda eða ganga í fancý fötum (þótt ég hafi að vísu keypt mér alveg geggjaða kjól í Spútnik... á útsölu... alltaf að spara...) heldur bara vera ánægður með lífið og tilveruna. Auðvitað koma tímar þar sem allt er í steik, próf á morgun og ég kann ekki neitt, ekkert nema reikningar að borga þessi mánaðarmótin og bankinn getur ekki beðið eftir að ég hækki yfirdráttinn, nokkur aukakíló bætast við þegar þunglyndið ætlar gjörsamlega að negla tilveruna við botninn á Atlantshafinu... en góðir tímar koma því ef þú ætlar að dansa á rósunum verðuru að lifa með þyrnum hennar.
En innan um vandamálin og argelsið eru mínútur sem við megum ekki gleyma... t.d. nokkrar mínútur í sjóðandi heitri sturtu á köldum vetrarmorgni! Eða fyrstu mínúturnar þegar maður leggst upp í rúm á kvöldin í tandurhrein rúmföt, dauðþreyttur! Eða bara eitt gott utanumhald frá þeim sem manni þykir vænt um... þessar mínútur og þessi móment eru allt í kringum okkur, við verðum bara að hafa augun opin og njóta þeirra á meðan varir... ég meina, miðað við alla þessa reikninga er bara tímaspursmál hvenær þeir loka fyrir heita vatnið og þá eru engar sturtur og öll rúmföt skítug!!

En sem sagt, ég óska ykkur til hamingju með daginn minn... ég er reyndari í dag en í gær... ég er líka 25 í dag en ekki í gær;)

Kk.

GG:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.12.2005 22:30:05 / GudrunHeimis

Hangikjet í bumbunni?

Jæja, jólin komin og bumban orðin stærri!! Haha! Plataði ykkur... ;)

Sá King Kong í gær og verð bara að segja ,,með betri myndum sem ég hef séð"!

Sá Narníu kvöldið áður og varð fyrir eilitlum vonbrigðum... enda markhópurinn kannski ekki ,,að verða 25 ára" ;)

Vinnumál skýrast vonandi á næstu dögum, gæti þó dregist fram á næsta ár en ég er allavega búin að sýna karlmennskutakta mína. Ég er kannski ekki með nógu stóra fætur í skóna en ég treð þá bara aukasokkum ofan í því ég geri ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn og hananú! Ég er ekki ókeypis... langt því frá!;) Kvenrembunámskeiði að borga sig? Gotchaagain!!

Kallinn kominn, þarf að skila tölvunni... ætla að halda áfram með DaVincilykilinn;) og fá mér svona eins og eitt súkkulaði... í tilefni jólanna... svo er bumban hvort eð er orðin svo stór... þegar fólk er farið að spurja hvort maður sé óléttur þá getur maður alveg eins haldið áfram að borða!!

Kk.

GG:):D


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2005 11:09:54 / GudrunHeimis

Jólakveðja

Jæja, jólajólajól!;)

Margt hefur gerst síðan síðast... en líkt og vanalega ekkert nema óljósar vísbendingar sem ég get gefið upp... en þetta skýrist nú flest allt á ca. viku. Sem sagt:

Massavinna mögulega að taka við í byrjun árs... Gæludýra-Guðrún looking fine aha;) og ef allt gengur upp þarf ég líklega að fresta útskriftinni!8|

En 25 árin nálgast óðfluga og jólin á morgun... allt að verða crazy! Ég var nottla alltof sein með allt saman og jólakortin urðu að láta í minni pokann... fóru eiginlega bara í ruslapokann... svo að ef þið fáið ekki jólakort eða fáið það seint þá vitiði bara að svona eru jólin hjá mér og minni familíu... enginn tími fyrir neitt því allt er að verða vitlaust!;)

Ætla niður að búa til besta ís í heimi með mömmu og Siggu... get ekki lýst því hversu fegin ég er að vera í ,,fríi" í desember, kláraði prófin í rólegheitum (NB var að fá 2 einkunnir... 8 og 9,5), búin að kynna bókina á fullu, fjölskyldan komin til landsins (7 börn bættust í hópinn á innan við viku!!;) ) og þetta gæti ekki verið mikið betra. Til að toppa lífið og tilveruna á ég þennan yndislega mann sem gefur lífi mínu tilgang! Án hans hefði ég aldrei losnað úr viðjum viðskiptafræðinnar og sæti vafalaust í einhverjum básnum, líklega í Kringlunni, að afgreiða svitnandi fertuga karlmenn sem hefðu áhyggjur af yfirdrættinum vegna jólagjafar konunnar;)

En ég er svo hamingjusöm og ég vona að þið séuð það líka... þetta er tíminn til að vera hamingjusamur og ef kjötið er ofbakað eða sultan súr þá skiptir það engu máli ef maður hefur rétta fólkið í kringum sig og rétta attitúdið til að hlæja að öllu þessu stressi! Það kemur annar dagur eftir þennan dag!:)

Öll sömul, nær og fjær... án ykkar væri tilveran frekar litlaus... hafið það æðislega gott um jólin og passið upp á hvert annað, ég læt  heyra í mér fljótlega og þá koma vonandi meiri fréttir;)

GLEÐILEG JÓL!!:D

GG8)

» 58 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 09:25:14 / GudrunHeimis

GÆS í anda Gæludýra-Guðrúnar:)

Las í Grandaskóla á jóla/barnabókaskemmtun í gær og það var alveg meiriháttar!! Það var svo gaman að sjá viðbrögðin hjá krökkunum þegar ég taldi upp nokkrar staðreyndir úr bókinni eins og t.d. að hjartað í mús slær um 1000 slög á mínútu og að heyrnalausir hundar skildu allt að 50 tákn. Þau voru æðisleg! Og svo þegar ég var búin að lesa kom ein lítil og faðmaði mig... algjört krútt!! og tvær báðu m.a.s. um eiginhandaráritun;)

Vitiði... I have a mission!! Þessir krakkar, sem hafa svona mikinn áhuga á dýrum, eru ekki að fá neitt íslenskt efni beint í æð. Allt sem boðið er upp á (að mér vitandi) eru þýddir erlendir þættir og það er bara ekki nógu gott! Með allt þetta raunveruleikasjónvarp í gangi, hvar er þá efnið um gæludýrin og öll hin dýrin sem færa svo mörgum alveg ótrúlega gleði? Þegar allt er í steik, vinkonan svíkur þig til að leika við aðra stelpu, þá bíður gæludýrið alltaf jafnspennt eftir því að tala við þig. Sama í hvernig skapi þú ert, gæludýrið er að mínu mati besti vinurinn! Og það er enginn að koma þessu efni áleiðis, hvorki í sjónvarpi né öðrum miðlum (að einhverju ráði)... nema þá á t.d. bestivinur.com og á þess háttar vefjum! En nú verður sögunni breytt! Ég get, ætla og skal þótt þetta hljómi alltaf jafn ,,kvennstjórnunarnámskeiðslegt" og sjáið bara til! Gæludýra-Guðrún to the rescue;)

Verð að halda áfram að læra... prófið hjá Baldri eftir 5 daga... alþjóðasamvinna og staða Íslands í alþjóðakerfinu... langar miklu frekar að búa til fyrsta handritið akkúrat núna!!;)

GG:D

p.s. er svo að lesa í gamla grunnskólanum mínum í dag (Mýró);) og í Holtaskóla í Keflavík í fyrramálið... þetta finnst mér langskemmtilegasti hluti þess að gefa út þessa bók... að lesa fyrir krílin!! Ótrúlegt:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 22:00:14 / GudrunHeimis

Já... held það bara!

Er þetta virkilega að gerast? Do dreams come true?? Ég komst skrefinu nær í dag... já, ég mjakaðist framávið og svartsýnin lét í minni pokann!! Nú er að duga eða drepast... massa þetta!! Með dugnaði og algjörri staðfestu, trú og smámikilmennskubrjálæði get ég allt!! Ég skal... skal... SKAL!! Og ekkert fær stöðvað mig nú!:D:D:D:D

Þá er bara að massa næsta verkefni, aldrei að vita nema ég tékki á stöðu þeirra mála á morgun, gæti orðið besta vika ársins? Aldrei að vita:D

GG:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 21:55:58 / GudrunHeimis

Jóla-jólastuð

Jólin eru að koma þegar Coke-auglýsingin með friðarlaginu er komin í tellý. ,,I’d like to buy the world a Coke and keep it company”.:haha:

Annars er allt á milljón, las í Iðu í dag, áritaði í Kringlunni og Smáralind í gær, viðtöl hingað og þangað, Mogginn, Fréttablaðið og Séð og Heyrt, Vitinn á Rás 1 og Brot úr degi á Rás 2. Allt að verða vitlaust!!;)

Sigga kom heim áðan með ÖnnuLó og Baltasar, Frosti og Eva kíktu í heimsókn með Mumma og Viktoríu og ég beilaði eftir klukkutíma8|. Komið kvöld og allir á milljón... nema Balti sem svaf bara:) Kristín kemur á föstudaginn með Tryggva svo að ég ákvað að koma mér heim og hlaða batteríin... þessi jól verða svakaleg!!! Ritgerð og próf eftir og þá er þetta blessaða nám loks að verða búið. Lokaverkefnið eftir en er ekki til fólk sem hefur tekið 20 ár í það? Það þarf eitthvað stórkostlegt til að ég útskrifist í vor... veit um eitt stórkostlegt en svartsýnin er eins og blóðeitrun sem dreifir úr sér á ógnarhraða...:$ think possitive, think possitive.:haha:

Flaug á Akureyri á fimmtudaginn til að lesa í Pennanum og varð svona líka brjálæðislega flugveik! Brjálað veður í Reykjavík þegar við lögðum í hann og flugstjórinn bauð okkur m.a.s. að taka seinna flug ef við treystum okkur ekki í ókyrrðina. Fólkið haggaðist ekki svo að ég hugsaði með mér, ,,þetta getur ekki verið svo slæmt! Ég er nú enginn aumingi... klára þetta bara!”:( Svo fórum við af stað og ég var alveg viss um að þetta væri bara búið. Í minningargreininni minni kæmi fram að ég hefði látist við flugtak á Reykjavíkurflugvelli, skaðabæturnar nema 200 þúsundum (þar sem við búum á þessu litla landi), en að sjálfsögðu mátti alls ekki fljúga í svona biluðu veðri!!:!: Anyhúú... við komumst úr ókyrrðinni yfir Reykjavík en þegar við nálguðumst Akureyri þá varð allt vitlaust og maginn á mér snerist í marga hringi! Undir restina var ég komin með pappapokann tilbúinn, blásturinn á fullu í andlitið á mér og söng ,,Búum til betri heim, sameinumst hjálpum þeim...” á tvöföldum hraða inni í mér... það mátti ekki tæpara standa, hefðum við verið mínútu lengur í loftinu hefði snúðurinn úr Vestubæjarbakaríi endað í pappapokanum!:^)

Sem sagt, vikan í stuttu máli. Nóg framundan og svo stór plön fyrir komandi ár!!;) Pósta fréttum um þau plön á næstu dögum/vikum. Eins og vanalega þá get ég ekki sagt strax frá;)

Jólakveðja,

GG:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 15:57:40 / GudrunHeimis

Time flies when you're having fun;)

Gat nú skeð. Á að sjálfsögðu að vera að læra en geri allt annað en það! Að vísu með ágætisafsökun, bókin og allt sem henni tengist;) Mætti í Ísland í bítið í morgun... fannst einu sinni eitthvað heillandi við að vinna við þann þátt en hvernig fer fólk að því að vakna svona snemma alla virka morgna, líta vel út og vera í góðu skapi í ofanálag? Úff... samstarfsfélagar mínir þyrftu áhættubónus ef þeir ættu að vinna með mér svona snemma á morgnana!! En allavega, nóg að gera, styttist í jólin og styttist í eina prófið mitt!!!:S Alþjóðasamvinna og staða Íslands í alþjóðakerfinu hjá doktor Baldri sem er alveg ferlega klár kall! Góður kennari en strangur (eins og þeir virkilega góðu yfirleitt eru!) Þannig að, nú eiga bara mál eins og Evrópusambandið, tollar og höft, smáríkjafræðin og varnarmál Íslendinga hug minn allan fram að jólum;) Eða næstum allan, ritgerði hjá Þorbirni er einnig á dagskránni:S Tala ekki meira um hana!!!

Næstum búin að kaupa allar jólagjafir og pakka þeim inn. Jólakortin bíða í borðstofunni og 30 frímerki, restin verður send í tölvu. Tvö ilmkerti til viðbótar brennd upp til agna en aðventukransinn enn ósnertur!! Gleymi þessu alltaf, enda ekki með besta minnið í heiminum!! Þrátt fyrir ,,lélegt" minni er ég búin að læra helling af jólatextum utan að, vildi óska að Baldur gæti bara prófað úr þeim, þá myndi ég brillera!;)

Huriði, skruppum á Rótarí (hvernig er þetta skrifað?) fund með pabba um daginn, átti að vera svona fjölskyldudæmi... mín ímynd af ,,fjölskyldudæmi" er greinilega mjög stöðluð því ég sá fyrir mér fullt af foreldrum með börn á öllum aldri, jólatré og jólasveina en þá voru niðjar og makar bara ég, Hössi og svo stelpa sem var með mér í MR. Þegar fundurinn hófst formlega vorum við beðin að kynna okkur... já já, ekkert mál ég er nú vön að koma fram!! Ég stend upp og brosi framan í félaga pabba en um leið og ég opna munninn gleymi ég því sem ég var beðin að segja... finnst allt í einu eins og forseti/formaður félagsins hafi beðið um einhvern bakgrunn, þ.e.a.s. fyrir utan hvert foreldrið var sem kom með mig á fundinn! Ég stend eins og auli fyrir framan virðulegu Rótarí-félagana og ætla að fara ulla út úr mér að ég sé viðskiptafræðingur og blablabla þegar ég ákveð að betra sé að taka ljóskuna á þetta og spurja hvort fólk vilji vita eitthvað meira. Formaðurinn/forsetinn afþakkar það pent og ég sest vandræðalega niður;) hefði verið skemmtilegri saga gæti ég logið að ykkur en svona er ég bara, lélegt skáld þegar kemur að sjálfri mér!

Jæja, þarf að halda áfram að læra!!!!! Urg, kannast svo við þessa tilfinningu, hef fundið fyrir henni frá því í 12 ára bekk! Er að klára þennan skóla eins og ég kláraði Mýró, Való, MR og  HR! Nú er það HÍ og þá er þetta bara orðið alveg ágætt!! Finnst ykkur það ekki?

GG;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 14:34:52 / GudrunHeimis

Update frá Sveden

Stödd í Sveden... Baltasar Bertil (nýasti meðlimur þessarar crazy family) var skírður við hátíðlega, sænska athöfn í fullu sumarhúsi af Svíum! Jæja, þessi ferð er búin að vera algjör draumur... amma er með og hún hefur skemmt sér konunglega! Það vantar bara Hössa til að fullkomna þetta en það verður bara ennþá ljúfara að hitta hann á föstudaginn þegar hann sækir mig á flugvöllinn! Ég er svo óendanlega heppin og ég skal sko segja ykkur það að ef ekki væri fyrir allt þetta góða fólk í kringum mig þá einfaldlega væri ég ekki til!

Tók ekki vinnunni hjá NFS í desember, ákvað bara að vera rithöfundur og njóta tímans með familíunni! Það er líka nóg að gera:) Les upp úr bókinni í Mál og menningu á Laugaveginum á laugardaginn, viðtal við Moggan á mánudag, viðtal við Vitann á Rás 1 á þriðjudag og svo fer ég seinna í vikunni á Akureyri til að lesa upp úr bókinni:D Þetta er alveg meiriháttar :)

En ég ætla ekki að vera partý-poober og hanga í tölvunni í útlandinu;) Heyri bara betur í ykkur þegar ég kem heim:)

Hej do!!

GG:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.11.2005 10:32:02 / GudrunHeimis

Stærri draumar - stærri vonbrigði.. en jólin eru að koma;)

Úff púff!! Er að rembast við að klára allt saman í skólanum fyrir ca fimm leytið á föstudagsmorguninn. Er á leið út til Siggu og allrar familíunnar, fyrir utan Hössa:( og Frosta&co en meiriparturinn verður þarna! Þvílík gleði... get ekki beðið... en sem sagt, síðustu dagar hafa farið í alls konar vitleysu, memó fyrir sjávarútvegsráðherra, skrif um líf eftir dauðann (NB engin niðurstaða frekar en vanalega), klippa alveg hryllilega "home-made-personal-humor" video urgsurg... jæja, fer ekki nánar út í það, mannskemmandi pælingar fyrir sál eins og mína.... Allaveganna, næ ekki að klára allt heila klabbið áður en ég fer út og ætti að sjálfsögðu ekki að vera að eyða tíma í að blogga... en þannig er þetta bara þegar nóg er að gera... þá fyrst tekur maður til, bloggar og klippir táneglurnar;)

Jæja, jólin jólin á leiðinni. Kláraði ilmkertið á viku og 5 jóladiskar eru á reply allan daginn, góðir vinir eins og Nat King Cole, David Bowie og Bing Crosby, Louis Armstrong, Boney M, Band Aid og síðast en ekki síst Helga Möller;) Allaveganna, er orðin húkkt á ilmkertinu og er á leið út í Blómaval að kaupa mér annað (og eitt til vara;) )

Eins og glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir þá er bókin komin út;) Já, ég er í skýjunum en eiginlega bara enn að ná þessu. Þetta er allt voðalega óraunverulegt einhvern veginn. Langar helst að vera bara í fríi í desember, það er ekki eins og ég sé bara að aulast eitthvað allan daginn, familían á landinu og ég fæ einn mánuð í að vera bara ,,rithöfundur”!!;) En aldrei að vita hvernig desember fer, tja jú, það kemst nú að öllum líkindum á hreint í dag... en ég held ég hafi aldrei hlakkað jafnmikið til jólanna?

En ekki mikið annað að frétta nema jú... átti fund um daginn:) Get ekki sagt neitt... en hef ákveðið að halda fast í drauminn út árið. Ætti að skýrast fyrir þann tíma og bara alveg spurning hvort ég hafi verið bænheyrð;) en sem sagt, gangi það upp fer það sko ekki framhjá neinum:) Þá verður haldið upp á það... og ég skelli því þá kannski saman við 25 ára daginn og jafnvel ein skál í tilefni bókarinnar;)

Jæja, þetta er komið út í vitleysu... þarf að þræða fataskápinn og finna eitthvað sem lætur mig líta út fyrir að vera ,,smart and successful"... á fund eftir nokkrar.

Blee...

GG:)


» 62 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 10:45:40 / GudrunHeimis

Aha!!!

Bókin er komin!! Hún er komin til landsins, hún er komin á skrifborðið mitt, hún kemur í verslanir fyrir helgi!!!!:D


» 12 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 13:19:09 / GudrunHeimis

Hvert förum við og hver tekur á móti okkur?

Bakaði kransaköku með ömmu í gær... fyrir skírnina hjá Siggu... 15 dagar í það:) Við settumst niður yfir kaffibolla á meðan hringirnir sóluðu sig í ofninum og ræddum málin. Við töluðum um þá sem eru farnir frá okkur, afi Sindri, afi Tryggi, amma Kristín, langafi Helgi og langamma Ingigerður, Kjartan og fleiri. Afi Sindri var ekki nema 69 ára þegar hann dó! Og það er enginn aldur! Hefði hann ekki reykt væri hann kannski hér enn í dag... og þegar amma ætlaði að finna dagsetninguna þegar langafi dó þá fletti hún í gegnum þykkan búnka af "jarðafarabæklingum"... hún er búin að missa marga... en svona er víst lífið... nema það að ég á þetta næstum allt eftir! Fjölskyldan og vinirnir... einhvern tíma förum við líka... og sum okkar eru nú þegar farin að týnast upp... við skulum segja upp þótt maður hafi svo sum ekki hugmynd um hvert fólk fer. En í hvert sinn sem ég fer í jarðaför finnst mér erfiðast að horfa á kistuna, vita að manneskjan sem er mér kær liggur þar ofan í og kannski mun ég aldrei aftur hitta hana. Tíminn er búinn, game over, þú misstir mann úr liðinu þínu og það getur enginn svarað þér hvort þú fáir einhvern tíma að hitta hann aftur!

Sumir halda í vonina um að hitta makann aftur en hvernig er það ef sá eftirlifandi finnur sér annan maka út sína ævi? Hvorum makanum fylgir hann þá þegar komið er til himna? Geta þeir deilt henni? Ætlar afi að deila ömmu með Kjartani? Þeir ættu allavega að hafa nógan tíma til að ræða það sín á milli því amma er svo spræk:)

En ef við hittum aftur alla þá sem við höfum misst þegar við förum þá hljótum við að finna fyrir ákveðnum spenningi þegar að burtfaradegi kemur... eða hvað? Ef enginn getur sannfært mig um að ég fari til þeirra sem mér eru kærastir þegar kemur að mínum burtfaradegi... nú þá get ég ekki ímyndað mér að ég geti sætt mig við að fara.

Hhhmmm... þetta er snúið... það er örugglega bara ágætt að við höfum ekkert um þetta að segja.

GG


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.11.2005 17:51:29 / GudrunHeimis

Þetta er allt að koma:)

Mig dreymir um að geta flautað með jólalaginu "White Christmas"...

Mig dreymir um jól á morgun... ooo... ef það væru bara jól á morgun... þvílíkur draumur!

En ég er að rembast við að klára fyrirlestur um Walter nokkurn Ong sem ég veit ekki hvernig á eftir að gagnast mér í framtíðinni? Algjör tímasóun út í gegn að vera að rembast við enskuþýðingar fram á rauða nótt og hver er útkoman? Nú... ekki betri en þetta:

,,Þessi þróun í sögunni er að öllum líkindum þekktasti hluti hugsana Ongs en hann vann einnig mikið í einstökum sviðum innan þessa margvídda módels af vestrænni menningu, t.d. í sögulegri þróun sjáanlegra tilhneigingar í vestrænni heimspekilegri hugsun og stærðfræðilegri umbreytingu hugsana á miðöldum og lengur."

Ég veit ekki einu sinni sjálf hvað þetta þýðir... vona bara að enginn spurji út í þetta! Fæ þvílíkt MR flash-back... finnst ég vera að gera enn einn sögufyrirlesturinn um Markús Árelíus eða Napoleon Bónaparte... nema það að þessi kall, sem ég er að tala um, bjó sér til kenningu um það hvernig talmálið breyttist í ritmál!!!! AAAAArrrrgggghhhhh....

Já já, annars það að frétta að kallinn á ammli á föstudaginn... að verða 28 ára!! og hann er búinn að sannfæra mig um að fara á jammið með dísunum! Ég ætla bara að slá til... drekkja sorgum mínum og athuga hvort tíminn líði ekki hraðar fram að jólum:)

Mig vantar svo að fá jólin núna... er með jóladiskinn á fullu, innkaupalistinn tilbúinn, jólakortin og frímerkin bíða spennt og Hössi, þessi elska, keypti handa mér svona "ready-to-cook" jóla-cookies... bara af því að ég er svo mikill kokkur;)

Until then... have yourself a merry, little Christmas.... now:)

GG p.s. ég er búin að gera ógeðslega heimasíðu í skólanum... http://www.myweb.is/gudrun/ þetta er eitt af því sem við lærum að gera... heimasíðu ala 7.bekkur!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 17:48:48 / GudrunHeimis

Geðorðin 10

Gleðilegan nóvember! Mánuður í jólastressið, jólakort, jólainnkaup, jólalög, jólajólajól!!:haha:

Fann þetta snilldarkort ofan í kassa með öllu draslinu mínu frá Fróða. Eins og vanalega þegar maður á að vera að læra er maður að gera eitthvað allt annað og í gærkvöldi ákvað ég að gramsa ofan í brúnum pappakassa og athuga hvað væri þar sniðugt að finna. Þetta kort er komið upp á vegg hjá mér, hvert sinn sem ég lít af tölvunni starir þetta á mig og heldur mér við efnið... fór ekki einu sinni í tíma í dag út af því... þarf að klára þessa blessuðu ritgerð!! En sem sagt, mikilvægt kort sem gefur mér 10 mikilvæg ráð sem ég á að fylgja til að halda sönsum og ná árangri... þetta á samt misvel við mig:

1. ,,Hugsaði jákvætt, það er léttara.” Já, það má vel vera að það eigi að heita léttara og að sjálfsögðu gerir maður sitt besta en hver á ekki sína nei-daga?8|

2. ,,Hlúðu að því sem þér þykir vænt um.” Þetta gengur mér ágætlega með eða svona eins og gengur og gerist. Ég er nottla alls ekki nógu dugleg að hringja í systur mínar úti, Heimir litli frændi, sonur Kristínar, átti ammli um helgina og ég er ekki enn búin að hringja!! Er verið að krýna mig verstu frænku í heimi þessa stundina... urg!:S

3. ,,Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir.” Hvað haldiði að ég sé að gera í Háskólanum? Þetta er einskonar sjálfspíningarhvöt! Finnst ég læra mun meira af skóla lífsins í dag en þessari stofnun en mennt er máttur og allt það svo að maður hættir ekki núna... :$

4. ,,Lærðu af mistökum þínum.” Úúúú... that’s a tough one! Það liggur við að þetta sé tilgangur lífsins, að læra af mistökunum, en það getur verið hægara sagt en gert... og það er fátt sem fer meira í taugarnar á mér en þegar ég geri sömu mistökin tvisvar, eins og að fara í glænýtt nám!!:!:

5. ,,Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina.” Já alveg pottþétt, labbaði út í sjoppu áðan (þeir eru alltaf svo næs í Kjötborg, þar er langbesta þjónustan, annað en kassinn í Hagkaup, hvað þá Bónus!!) og keypti mér Coke light, var alveg í skýjunum eftir það... létt lund með léttu kóki. Annars er þetta ráð ekki í hávegum haft hjá mér.

6. ,,Flæktu ekki líf þitt að óþörfu.” Ég er soddan dramaqueen að það er ekki hægt að biðja mig um þetta. Líf mitt er ein flækja og dagurinn fer í að greiða úr henni. Svo þegar hún er orðin nokkuð slétt og fín kemur eitthvað upp á sem setur allt í rugl aftur... þetta er eins og blómabeðin fyrir utan nýbúablokkirnar í Malmö... þetta fer allt í hringi... arfinn kom aftur þar eins og flækjurnar koma aftur hér... kvenmenn!!!

7. ,,Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig.” Já, þetta mætti eiga heima á ferilskránni. Ég er nokkuð góð í þessu nema ef fólk sér ekki tækifærið, nennir ekki að vinna fyrir hlutunum eða ber ekki virðingu fyrir mínum nánustu! Þá á ég mjög erfitt með að vera jákvæð í þeirra garð... en í flestum tilfellum fyrirgef ég fólki... enda kvenmaður!!

8. ,,Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup.” Eeehhh... til að þetta ráð gagnist mér eitthvað verð ég greinilega að vera duglegri að nýta mér ráð nr 5 vegna þess að í því formi sem ég er í núna þá er langhlaup not my cup of tea!! En ætli það skipti nokkru máli hversu mikið ég hreyfi mig, þegar ég var búin til var öll þolinmæði búin (enda held ég að það hafi ekki verið neitt sérstaklega mikið af henni þegar við öll vorum búin til... úff þetta getur misskilist alveg hryllilega... eeehhhh.... æjæjæjjj.... sko, það er ákveðið mikið af einkennum sem hægt var að skipta á milli okkar systkinanna meina ég og þolinmæðin sem eitt einkenni var bara búin þegar örverpið tók á sig mynd) þannig að ég á mjög erfitt með að sætta mig við að velgengnin í lífinu sé langhlaup. Ég skal alveg lifa lengi, ég er til í það, eða já... samt ekki of lengi... en ég er óþolinmóð á velgengnina... ég er að standa mig vel núna og vil sjá afrakstur (er þetta virkilega rétt orð???) af því núna! Þannig er ég bara... enda var ég að verða brjáluð í sumar þegar það tók mig mánuð eða svo að komast almennilega inn í vinnuna! Jæja, allaveganna... ég er sem sagt óþolinmóða týpan!:klikk:

9. ,,Finndu og ræktaðu hæfileika þína.” Er ég nokkuð svona Idol-dæmi sem held að ég sé geðveikt góð í einhverju en er í raun skelfileg? Viljið þið láta mig vita, tek allri gagnrýni með stóískri ró svo lengi sem þið setjið nafn við commentið!!! Ég held allavega að ég hafi fundið einhvern hæfileika... en svo leynast eflaust fleiri þarna undir, enda trúi ég ekki að fólk sé bara gott í einhverju einu eða tvennu!

10. ,,Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast.” Já, LÁTTU... það er auðvelt að skrifa svona á blað og láta prenta það í nokkur þúsund eintökum!! Svo þurfa vitleysingarnir sem pikka þetta upp að lifa eftir þessu... það er hægara sagt en gert... en það hlítur að vera hægt! Ég þarf bara að hreyfa mig daglega, hugsa jákvætt, hvetja aðra í kringum mig og rækta hæfileika mína... svona fólk á bara heima í bíómyndum... amerískum bíómyndum... því ég verð að sætta mig við að ég er bara mennsk.

Lifið í lukku en ekki í krukku... þetta var allt mikið einfaldara þegar maður var 8 ára!

Bleee...

GG


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Leitarbox